Jonathan Rasheed er genginn í raðir KA en hann kemur til félagsins frá Värnamo í Svíþjóð. Samningur hans við sænska félagið rann út um áramótin.
Hann er 33 ára og kemur líklega til með að veita Steinþóri Má Auðunssyni samkeppni um aðalmarkmannsstöðuna. Jonathan er þriðji leikmaðurinn sem bikarmeistararnir fá í sínar raðir í vetur.
Hann er fæddur í Gautaborg, og er með norskan ríkisborgararétt. Faðir hans er nígerískur og móðir hans er norsk.

Rasheed á að baki 47 leiki í efstu deild Svíþjóðar, 40 leiki í sænsku B-deildinni og 29 leiki í norsku B-deildinni, svo eitthvað sé nefnt.
Á síðasta tímabili lék hann 14 leiki fyrir Värnamo í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið hélt sér í úrvalsdeildinni eftir fallumspil. Tímabilið á undan spilaði hann 22 leiki í úrvalsdeildinni þegar Värnamo náði 5. sæti.
Áður en hann fór til Värnamo var hann hjá Häcken og lék þar fyrst með Óskari Sverrissyni og síðar Valgeiri Lunddal Friðrikssyni. Hann var varamarkmaður liðsins þegar Häcken varð sænskur meistari 2022. Þess má til gamans geta að snemma á ferlinum lék Rasheed með FH goðsögninni Allan Borgvardt í sænska liðinu Sylvia.
Komnir
Jonathan Rasheed frá Svíþjóð
Guðjón Ernir Hrafnkelsson frá ÍBV
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá FH (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Hákon Atli Aðalsteinsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Farnir
Daníel Hafsteinsson í Víking
Sveinn Margeir Hauksson í Víking
Elfar Árni Aðalsteinsson í Völsung
Harley Willard á Selfoss
Kristijan Jajalo til Austurríkis
Darko Bulatovic til Svartfjallalands
Athugasemdir