Framherjinn, Viðar Örn Kjartansson er á leiðinni frá rússneska félaginu Rostov samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Viðar Örn gekk til liðs við Rostov frá ísraelska félaginu, Maccabi Tel Aviv í ágúst á síðasta ári. Tækifæri Viðars með Rostov hafa verið af skornum skammti.
Viðar Örn gekk til liðs við Rostov frá ísraelska félaginu, Maccabi Tel Aviv í ágúst á síðasta ári. Tækifæri Viðars með Rostov hafa verið af skornum skammti.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Viðar Örn lánaður frá Rostov en hann hefur verið orðaður við félög bæði í Tyrklandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum.
Viðar Örn hefur aðeins byrjað einn leik með Rostov í rússnesku deildinni og komið sjö sinnum inná sem varamaður án þess að skora.
Viðar skoraði tvívegis fyrir Rostov í æfingaleikjum í janúar.
Viðar Örn Kjartansson fagnar 29 ára afmæli sínu í dag. Til lukku með daginn @vidarkjartans 🎉 #fyririsland pic.twitter.com/Is3qTXub4Y
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 11, 2019
Athugasemdir