Fotbolti.net
11.04.21 - 12:35
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Darmian tryggði ellefta deildarsigurinn í röð

Ítalía: Darmian tryggði ellefta deildarsigurinn í röð
Canon

Mynd: Getty Images

Inter 1 - 0 Cagliari
1-0 Matteo Darmian ('77)
Matteo Darmian, fyrrum leikmaður Manchester United, var í byrjunarliði Inter og tryggði liðinu 1-0 sigur gegn Cagliari í fyrsta leik dagsins í ítölsku deildinni.

Þetta var ellefti sigur Inter í röð í deildinni og er liðið komið með aðra hönd á eftirvæntan Ítalíumeistaratitil, sem hefur verið einokaður af Juventus undanfarinn áratug.

Antonio Conte hefur fengið mikið lof fyrir starf sitt hjá Inter og voru hans menn mun betri gegn Cagliari í dag. Darmian skoraði á 77. mínútu eftir stoðsendingu frá hinum vængbakverðinum, hinum feykiöfluga Achraf Hakimi.

Inter er með ellefu stiga forystu á toppi deildarinnar þegar aðeins átta umferðir eru eftir.

Cagliari er óvænt í afar slæmri stöðu í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.