Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fim 11. apríl 2024 09:30
Elvar Geir Magnússon
Calvert-Lewin loks búinn að finna skotskóna - Á að vera með rúmlega tvöfalt fleiri mörk
Dominic Calvert-Lewin.
Dominic Calvert-Lewin.
Mynd: Getty Images
Eftir átján leiki án þess að skora mark þá skoraði Dominic Calvert-Lewin tvö mörk á einni viku fyrir Everton. Hann gerði sigurmarkið gegn Burnley og skoraði í 1-1 jafntefli gegn Newcastle.

„Ef hann er kominn á skrið þá kemur það á hárréttum tíma," segir Ben McAleer hjá WhoScored tölfræðivefnum.

Sigurinn gegn Burnley batt enda á þrettán leiki Everton án sigurs, lengsta skrið félagsins án þess að vinna síðan 1937. Sigurinn varð enn mikilvægari þegar í ljós kom að tvö stig til viðbótar yrðu dregin af liðinu vegna fjárhagsbrota.

„Þetta hefur verið tímabil til að gleyma fyrir Calvert-Lewin. Markið hans um síðustu helgi var aðeins hans fimmta á tímabilinu og hann getur að þessu sinni ekki kennt meiðslum um. Hann hefur spilað 27 leiki fyrir Everton á þessu tímabili og er aðeins með eina stoðsendingu."

Markaskorun hefur verið einn helsti akkilesarhæll Everton á þessu tímabili. Þeir hafa aðeins skorað 32 mörk í 31 leik, aðeins botnlið Sheffield United hefur skorað færri mörk.

„Calvert-Lewin er einn helsti sökudólgurinn ef horft er á vænt mörk (xG tölfræðina). Hann á að vera kominn með ellefu mörk, meira en tvöfalt fleiri en hann hefur í raun skorað. Til að gæta sannirnir þá er hann ekki eini sóknarmaður Everton sem á í vandræðum með markaskorun. Beto var keyptur frá Udinese fyrir 26 milljónir punda síðasta sumar og hann hefur aðeins skorað þrjú deildarmörk (og er ekki með neina stoðsendingu) í 26 leikjum," segir McAleer.

Everton er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti en liðið mætir Chelsea á mánudaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner