Linda Líf Boama hefur farið afar vel af stað í atvinnumennskunni með Kristianstad í Svíþjóð og segir fyrstu mánuðina hafa farið fram úr hennar væntingum.
„Ég veit ekki alveg hvaða væntingar ég hafði þegar ég fór út en þær fóru fram úr þeim. Þetta er bara frábær bær, frábært fólk, geggjaður hópur og það bara kemur ekkert neikvætt í hugann,“ sagði Linda þegar Fótbolti.net ræddi við hana.
Hún segir það hafa hjálpað að þekkja vel til þjálfarans áður en hún gekk til liðs við félagið en Nik Chamberlain tók við þjálfun liðsins í vetur. Þau unnu saman hjá Þrótti fyrir nokkrum árum.
„Það er alveg lúxus að geta tekið fyrstu skrefin í atvinnumennsku með þjálfara sem þú þekkir eða þekkir til. Ég vissi svona hvað hann ætlaðist af mér og að sama skapi hvað ég fæ með honum. Þetta er bara gott samstarf sem hefur virkað áður, þannig að það hlýtur að virka aftur.“
Linda hefur tekið skref fram á við sem leikmaður á síðustu mánuðum og segir smáatriðin skipta miklu máli.
„Ég held bara allt, svona yfir höfuð. Ég held að ég sé bara orðin beinskeyttari leikmaður og bara búin að bæta styrkleikana mína og ég er að vinna í veikleikum líka.“
Hún segir sjálfstraust lykilatriði í sínu hlutverki sem framherji.
„Maður er framherji, maður á að slútta. Það er bara geggjað líka að byrja tímabilið vel og vera komin með nokkur mörk. Þetta er gott fyrir striker, að vera með sjálfstraust og kassann úti.“
Að hennar mati er sænska deildin jafnari en hún átti von á.
„Allir leikir eru jafnir. Maður fær alltaf góða leiki og það er það besta til að móta lið og búa til kemestríu, sérstaklega í svona nýju liði.“


