Fotbolti.net
11.05.21 - 22:42
Ívan Guðjón Baldursson

Gunnar Magnús: Helvíti ódýrt að fá spjald fyrir svona

Gunnar Magnús: Helvíti ódýrt að fá spjald fyrir svona
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur var sáttur eftir markalaust jafntefli á útivelli gegn Stjörnunni í kvöld.
Stjarnan sótti mikið en fann lítið af glufum á þéttri vörn Keflvíkinga. Keflavík fékk einnig fín færi til að skora en inn vildi boltinn ekki.

„Þetta var barningur, við unnum vel fyrir þessu stigi. Leikskipulagið gekk upp og ég er virkilega sáttur," sagði Gunnar Magnús.

Undir lok leiksins fékk Abby Carchio tvö gul spjöld með skömmu millibili. Fyrst braut hún af sér utan teigs og svo klappaði hún kaldhæðnislega fyrir dómaranum. Gunnar virtist ekki sérlega sáttur með þá dómaraákvörðun.

„Ég veit ekki nákvæmlega með reglurnar en Kristján vill meina það að þetta sé samkvæmt reglum alveg klárt annað gult spjald. Mér finnst helvíti ódýrt að fá spjald fyrir svona. Þetta er kannski líka á henni að gera þetta ekki en þetta fór svona og kom ekki að sök þar sem við héldum stiginu.

„Ég fagna stiginu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.