Fotbolti.net
11.06.19 - 21:54
Egill Sigfússon

Birkir Bjarna: Ómetanlegur stuðningur

Auglýsing
Birkir var frábær í kvöld

Birkir var frábær í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland vann Tyrkland 2-1 í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli í kvöld og eru með 9 stig eftir fyrstu 4 leikina í undankeppninni. Birkir Bjarnason sagði sigurinn verðskuldaðan og talaði um að þetta væri besti leikur liðsins í langan tíma.
„Þetta er örugglega besti leikur okkar í langan tíma, sérstaklega fyrri hálfleikur og svo náum við að spila þetta út í seinni hálfleik og vorum bara klókir. Við náðum gjörsamlega að loka fyrir og ná í þessi 3 stig."

Birkir hefur ekki spilað mikið á árinu en leið vel á vellinum í dag og náði að sýna mjög góða spilamennsku fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll.

„Mér leið mjög vel, sérstaklega eftir að hafa spilað mjög lítið undanfarna mánuði, þetta var frábær leikur hjá öllum sem gerir þetta auðveldara fyrir mig. Það gefur okkur mjög mikið að fá fulla stúku í svona leikjum er ómetanlegt og frábært fyrir okkur sem erum á vellinum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.