Fotbolti.net
11.06.21 - 20:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ingibjörg var slöpp - Steini útskýrir af hverju Sveindís spilaði ekki

Sveindís Jane

Sveindís Jane

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir 3-2 sigur gegn Írlandi í vináttuleik í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 2 Írland
Hann var m.a. annars spurður út í þá ákvörðun að taka Ingibjörgu Sigurðardóttur af velli á 64. mínútu og þá ákvörðun að nýta ekki krafta Sveindísar Jane Jónsdóttur í leiknum.

„Ingibjörg var bara slöpp. Ekki léleg, var eitthvað kalt og eitthvað svoleiðis þannig að við tókum hana út af," sagði Steini.

Af hverju spilaði Sveindís ekki?

„Sveindís er búin að taka þátt í tveimur síðustu leikjum Kristianstad eftir meiðsli. Við viljum fara vel með hana, ég sagði fyrir verkefnið að hún væri ekki klár í tvo 90 mínútna leiki."

„Það er okkar hagur að hún fari heil, góð og fersk út úr þessu verkefni og við vorum ákveðnir í því að við myndum spila henni lítið sem ekkert í dag. Það var ekki samkomulag milli okkar og Kristianstad, ég er bara að hugsa um hag hennar,"
sagði Steini.
Ingibjörg

Ingibjörg

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.