
Það styttist í það að hópur Íslands fyrir Evrópumótið verði valinn og það eru nokkur spurningamerki. Það fara bara 23 leikmenn til Sviss og er líklega ákveðinn hausverkur fyrir Þorstein Halldórsson, landsliðsþjálfara, að velja.
Rætt var um það í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, hvaða leikmenn gætu gert tilkall í hópinn.
Rætt var um það í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, hvaða leikmenn gætu gert tilkall í hópinn.
„Ég held að það sé nokkuð öruggt að hún verði ekki á EM miðað við það sem maður hefur heyrt. Það er mjög vont að hafa ekki haft Selmu í undanförnum verekfnum, hún er frábær leikmaður," sagði Orri Rafn Sigurðarson um Selmu Sól Magnúsdóttur sem hefur misst af síðustu landsliðsgluggum vegna meiðsla.
Það er ljóst að sóknarmennirnir Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir verða ekki með vegna meiðsla.
„Það er spurning hvernig standi Diljá Ýr Zomers er í, en hún er að koma til baka eftir erfið meiðsli. Ég tel ekki ólíklegt að hún verði þarna," sagði Orri Rafn.
„Spurningin er helst þessi níustaða, hvort við ættum að taka inn einhvern leikmann þar. Ég væri til í að sjá Vigdísi Lilju fá tækifærið, en það er kannski stórt að vera valin í fyrsta sinn fyrir EM. Hlutirnir eru samt fljótir að breytast í þessu. Það væri ekkert galið að taka Berglindi Björgu með ef við þurfum mark."
„Ég myndi vilja sjá Vigdísi Lilju," sagði Gylfi en Vigdís fór nýverið til Anderlecht í Belgíu eftir að hafa leikið vel með Breiðabliki hér heima. „Fyrir mér er hún betri en Berglind (Björg) og Fanndís (Friðriksdóttir). Ég hef væntingar um það að íslenska landsliðið sé að fara á fleiri stórmót á næstu árum og ég vil að við nýtum öll tækifæri sem við fáum til að blóðga unga leikmenn."
„Ég er með eitt nafn... hún er aldrei að fara að vera valin en þetta er pæling sem ég er með í ofninum. Elín Helena (Karlsdóttir), er hún mjög langt frá því að banka á dyrnar í þetta landslið? Hún er hávaxin og hraður hafsent," sagði Gylfi. „Ég held að hún gæti verið leikmaður sem hentar þeirri þróun sem er í landsliðinu. Ég er ekki viss um að hún sé mikið síðri en Ingibjörg og Guðrún."
„Hún fer undir radarinn í allri umræðu. Ég veit fyrir víst að Nik (Chamberlain, þjálfari Breiðabliks) er mjög ánægður með Elínu Helenu," sagði Orri.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan en það verður virkilega gaman að sjá hvernig hópurinn verður.
Næsti leikur Íslands er vináttuleikur gegn Serbíu 27. júní og svo verður haldið til Sviss.
Athugasemdir