Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
   fim 11. júní 2026 11:41
Kári Snorrason
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er búið að ganga vel. Við fórum upp um deild á síðasta ári. Farnir að ná úrslitum í síðustu fimm leikjum, þetta leit ekkert allt of vel út í byrjun móts. Gott að vera búnir að læra vinna í nýrri deild,“ segir Davíð Snær Jóhannsson, leikmaður Álasunds í Noregi aðspurður um upphaf tímabilsins.

Hjá Álasund er Ólafur Guðmundsson liðsfélagi Davíðs en Fótbolti.net ræddi sömuleiðis við hann í vikunni.

Davíð gekk til liðs við Álasund frá FH í lok árs 2023. Á tímabilinu hefur hann spilað níu leiki, þar af fimm í byrjunarliði.

„Ég er í frekar stóru hlutverki. Dálítið mikið inn og út úr byrjunarliðinu en alltaf í stóru hlutverki innan leiksins. Ég er búinn að rokka svolítið um stöður, búinn að spila frammi sem ég er ekki alveg beint vanur en það hefur gengið vel.“

„Það er alltaf stemning að vera frammi. Mér líður best þegar ég er tíu metrum fyrir aftan framherjann, ég held að það sé mitt besta hlutverk.“

Davíð var utan hóps í síðustu tveimur leikjum Álasunds.

„Það er búið að vera smá vesen á hásininni hjá mér. Þetta er í raun ekkert alvarlegt en sénsinn var of stór að taka rétt fyrir langt frí. Það var tekin ákvörðun um að setja mig í smá frí frekar en að gera þetta illt verra sem hefði orðið katastrófa. Nú er þetta allt komið í góðan farveg og verð klár fyrir næsta leik eftir sumarfrí.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner