Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. september 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Steindi sannspár - Sá fyrir 5-0 sigur City á Liverpool
Mynd: Úr einkasafni
Leikarinn og skemmtikrafturinn Steinþór Hróar Steinþórsson, Steindi Jr, spáði í leiki helgarinnar á Englandi hér á Fótbolta.net.

Steindi hefur verið ansi sannspár en hann hefur spáð fyrir um réttan sigurvegara í sex af níu leikjum í umferðinni.

Mikla athygli vakti á laugardaginn þegar Manchester City burstaði Liverpool 5-0, nákvæmlega eins og Steindi hafði spáð fyrir um!

„Það er allt búið að vera í apaskít hjá Liverpool mönnum. Svanþór Einarsson, fasteignasali og vinur minn úr Mosfellsbæ, er mikill púllari og hann hefur misst alla trú á sínum mönnum," sagði Steindi í 5-0 spánni sinni.

Smelltu hér til að lesa spá Steinda fyrir helgina






Athugasemdir
banner
banner