Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   þri 11. október 2022 08:25
Elvar Geir Magnússon
Atletico hefur áhuga á Firmino - Martinelli vill nýjan samning
Powerade
Roberto Firmino.
Roberto Firmino.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gabriel Martinelli.
Gabriel Martinelli.
Mynd: EPA
Michael Carrick er í viðræðum við Middlesbrough.
Michael Carrick er í viðræðum við Middlesbrough.
Mynd: EPA
Það er komið að hinum daglega slúðurpakka í boði Powerade. Firmino, Martinelli, Van de Beek, Arthur, Toney, Iwobi og Kante eru í pakkanum í dag.

Atletico Madrid hefur áhuga á brasilíska framherjanum Roberto Firmino (31), leikmanni Liverpool. (Todo Fichajes)

Leicester City hefur áhuga á hollenska miðjumanninum Donny van de Beek (25) hjá Manchester United. (Ekrem Konur)

Brasilíski sóknarleikmaðurinn Gabriel Martinelli (21) segist vilja gera nýjan langtímasamning við Arsenal. Hann er í viðræðum um að tvöfalda laun sín en hann fær um 50 þúsund pund á viku. (Times)

Martinelli vill fá borgað á pari við launahæstu leikmenn Arsenal, um 200 þúsund pund á viku. (Mail)

Liverpool hefur ekki í hyggju að virkja ákvæði um að kaupa Arthur Melo (26) sem er á láni frá Juventus út tímabilið. Brasilíumaðurinn þarf aðgerð vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu. (CBS Sports)

Brentford ætlar að bjóða Ivan Toney (26) nýjan samning til að fæla burt áhuga Manchester United, Leeds, Newcastle og West Ham á sóknarmanninum. (Mirror)

Everton hefur hafið viðræður við nígeríska miðjumanninn Alex Iwobi (26) um nýjan samning. (Football Insider)

Franski miðjumaðurinn N'Golo Kante (31) vill vera áfram hjá Chelsea þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Paris St-Germain. (Le10 Sport)

Ítalski miðjumaðurinn Jorginho (30) gæti yfirgefið Chelsea og farið til Barcelona á frjálsri sölu næsta sumar. Umboðsmaður hans sást í Katalóníu. (Tuttomercato)

Newcastle hefur áfram áhuga á James Maddison (25) hjá Leicester og franska sóknarmanninum Moussa Diaby (23) hjá Bayer Leverkusen. (i News)

Viðræður Middlesbrough við Michael Carrick, fyrrum miðjumann Manchester United, um að taka við sem stjóri liðsins eru komnar vel á veg. (Football Insider)

Chelsea hefur rætt við Michael Edwards, fyrrum íþróttastjóra Liverpool, um að fara í svipað starf á Stamford Bridge. (90min)

Tottenham er í viðræðum við Google um nafnaréttinn á leikvangi sínum. (Athletic)

Romeo Beckham, sonur David fyrrum landsliðsfyrirliða Englands, mun spila vináttuleik með varaliði Brentford gegn Crewe á laugardaginn. Leikurinn verður bak við luktar dyr. (Mirror)

Carlos Corberan, fyrrum stjóri Huddersfield, er talinn líklegur til að taka við West Bromwich Albion en Steve Bruce var látinn taka pokann sinn í vikunni. (Mirror)

Gabriel Slonina (18), bandarískur markvörður Chelsea sem hefur verið hjá Chicago Fire á láni, mun æfa í London í tvær vikur. Eftir það verður ákveðið hvort hann muni æfa með Chelsea til frambúðar eða vera lánaður aftur í MLS-deildina. (Football.London)

Vængmaðurinn Cody Gakpo (23) hjá PSV Eindhoven hefur ekki lengur áhuga á að fara til Leeds, þrátt fyrir minnlegt samkomulag í sumar. Manchester United, Arsenal og Real Madrid hafa einnig sýnt hollenska landsliðsmanninum áhuga. (Mirror)
Slapp
banner
banner