Fotbolti.net
11.10.22 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Meistaradeildin í dag - Tekst Íslendingunum að stríða Man City á Parken?

Erling Braut Haaland verður í liði Man City

Erling Braut Haaland verður í liði Man City

Canon

Mynd: EPA

Fjórða umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld með átta leikjum.
Milan og Chelsea eigast aftur við í E-riðlinum en Chelsea hafði betur í síðustu viðureign og vann þar öruggan sigur. Milan fær nú Chelsea í heimsókn á San Síró.

Shakhtar og Real Madrid eigast þá við í F-riðli á meðan Celtic spilar við Leipzig.

Í G-riðli fá Íslendingarnir í FCK annan séns til að stríða Manchester City en nú fer enska liðið á Parken. Borussia Dortmund tekur á móti Sevilla í sama riðli.

Benfica spilar við PSG í H-riðli á meðan Juventus fer til Ísrael og spilar við Maccabi Haifa.

Leikir dagsins:

E-riðill
19:00 Dinamo Zagreb - Salzburg
19:00 Milan - Chelsea

F-riðill
19:00 Shakhtar D - Real Madrid
19:00 Celtic - RB Leipzig

G-riðill
16:45 FCK - Man City
19:00 Dortmund - Sevilla

H-riðill
16:45 Maccabi Haifa - Juventus
19:00 PSG - Benfica
Ísak Bergmann byrjaði síðasta leik gegn Man City

Ísak Bergmann byrjaði síðasta leik gegn Man City

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.