Fotbolti.net
11.11.26 - 12:38
Kári Snorrason

Bergþóra Sól riftir við Víking

Kom til Víkings frá Örebrö fyrir tveimur árum.

Kom til Víkings frá Örebrö fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net rift samningi sínum við Víking í kjölfar fall liðsins úr Bestu deildinni.

Bergþóra framlengdi samning sinn við félagið í sumar og var samningurinn í gildi út tímabilið 2028 en hún er nú laus allra mála.
Bergþóra er 23 ára gamall miðjumaður og var hún valin besti leikmaður liðsins á lokahófi Víkings bæði eftir tímabilið 2025 og 2026.

Hún er uppalinn Bliki en fór út til til Örebrö í Svíþjóð fyrir þremur árum og lék 20 leiki fyrir liðið. Þaðan fór hún í Víkina sumarið 2024 og hefur hún spilað 72 leiki fyrir liðið.

Víkingur féll óvænt niður úr Bestu deildinni á liðnu tímabili. Gylfi Tryggvason er tekinn við liðinu eftir að Einar Guðnason lét af störfum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.