11.11.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evrópubikarinn: Frábær innkoma hjá Ídu - Stórsigur hjá Diljá

Ída Marín

Mynd: Hammarby

Diljá Ýr

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ída Marín

Mynd: Hammarby

Ída Marín Hermannsdóttir átti frábæra innkomu í 4-0 sigri Hammarby gegn Myjava frá Slóvakíu í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins í kvöld.
Staðan var markalaus þegar hún kom inn á eftir klukkutíma leik. Hún skoraði annað mark liðsins og lagði upp það þriðja. Hammarby vann einvígið 7-1 samanlagt.

Hlín Eiríksdóttir var ónotaður varamaður þegar Malmö tapaði 2-0 gegn Ajax. Malmö vann fyrri leikinn 2-1 og tapaði því einvíginu 3-2. Ajax mætir Hammarby í 8-liða úrslitum.
Diljá Ýr Zomers spilaði 65 mínútur þegar Brann vann 5-1 sigur á Szarni Sosnowiec frá Póllandi en Brann vann einvígið 8-1. Brann mætir annað hvort Sparta Prag eða Torreense í næstu umferð.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir var í byrjunarliði Bröndby sem vann Rosenborg 2-0 og samanlagt 3-1. Selma Sól Magnúsdóttir var ónotaður varamaður hjá Rosenborg. Bröndby mætir Wolfsburg í 8-liða úrslitum.