11.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna: Emelía kom inn á í jafntefli


Mynd: HB Köge


Mynd: HB Köge

Emelía Óskarsdóttir kom inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli danska liðsins Köge á útivelli gegn belgíska liðinu Leuven í Meistaradeild kvenna í kvöld.
Emelía kom inn á 57. mínútu. Leuven komst yfir á 79. mínútu en Köge jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar.
Emelía kom inn á 57. mínútu. Leuven komst yfir á 79. mínútu en Köge jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar.
Köge er með fjögur stig eftir fjóra leiki. Liðið vann Servette 5-1 en tapaði gegn Barcelona 8-1 og Arsenal 1-0.
Liðið heimsækir OB í dönsku deildinni um helgina og og heimsækir síðan Paris FC í næstu viku í næst síðustu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Liðið heimsækir OB í dönsku deildinni um helgina og og heimsækir síðan Paris FC í næstu viku í næst síðustu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
