Fotbolti.net
11.11.26 - 12:46
Kári Snorrason

Munnlegt samkomulag við Pochettino í höfn

Munnlegt samkomulag við Pochettino í höfn
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino virðist vera taka við sem nýr stjóri Manchester United. Sky Sports greinir frá því að munnlegt samkomulag milli Argentínumannsins og félagsins sé í höfn.

United hefur verið í viðræðum við Pochettino þrátt fyrir að hafa ekki tilkynnt um brottrekstur Michael Carrick, sem er staddur á Carrington og stýrði æfingu liðsins í dag.
Pochettino er þjálfari bandaríska landsliðsins en Bandaríkjamenn mæta Haítí heima og að heiman í 8-liða úrslitum Concacaf Þjóðadeildarinnar.

Mögulegt er að Pochettino yfirgefi Bandaríkin í miðju verkefni.

Skyldi ráðningin á Pochettino ganga eftir verður fyrsti leikur hans með United gegn Liverpool á Anfield 22. nóvember.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.