11.11.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Útskýrir af hverju hann yfirgaf Chelsea fyrir Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Árið 2024 tók enska ungstirnið Rio Ngumoha þá stóru ákvörðun að yfirgefa Chelsea og ganga til liðs við Liverpool, en hann segist ekki sjá eftir félagaskiptunum.

TENGT EFNI
Ngumoha dreymir um að feta í fótspor Kane
Liverpool náði að krækja í Ngumoha frá Chelsea, sem fór afar illa í Lundúnafélagið. Svo illa raunar að njósnurum og fulltrúum Liverpool var í kjölfarið meinaður aðgangur að leikjum yngri liða Chelsea.
Ngumoha þreytti frumraun sína með Liverpool í byrjun síðasta árs og hefur smám saman fengið stærra hlutverk hjá félaginu.
Í viðtali við Independent útskýrði hann hvers vegna hann ákvað að yfirgefa Chelsea og ganga til liðs við Liverpool.
„Mér fannst ég þurfa nýja áskorun. Ég er ekki að segja að ég hefði ekki komist jafn hratt í aðalliðið hjá Chelsea, því ég hef mikla trú á eigin hæfileikum, en Liverpool bauð mér aðra leið. Planið sem félagið lagði fyrir mig var mjög skýrt og ég var aldrei í neinum vafa um að ég vildi fara til Liverpool.“
„Þeir sögðu mér að ef ég myndi sanna mig, þá vissi félagið hversu mikla hæfileika ég hefði og að ég gæti orðið aðalliðsleikmaður og framtíðarstjarna. Hingað til hefur ákvörðunin um að fara til Liverpool reynst sú rétta.“
Ngumoha fékk einnig að æfa með aðalliði Chelsea áður en hann yfirgaf félagið. Þar var Raheem Sterling á meðal leikmanna, en Ngumoha hefur lengi litið upp til hans og fékk dýrmæt ráð frá honum.
„Ég æfði nokkrum sinnum með aðalliðinu og Raheem Sterling tók mig nokkrum sinnum til hliðar. Hann sagðist sjá hæfileikana í mér, en lagði áherslu á að ég mætti aldrei detta út úr leikjum og þyrfti alltaf að vera með hugann við leikinn.“
„Bestu leikmennirnir eru alltaf tilbúnir, jafnvel á lokamínútunum. Ef þú horfir á hann og Mo Salah þá eru þeir alltaf til staðar á mikilvægustu augnablikunum. Það var mjög dýrmætt að læra þetta af þeim.“
Ngumoha hefur einnig fengið að kynnast því hvernig það er að spila fyrir framan stuðningsmenn Liverpool á Anfield og segir andrúmsloftið þar engu líkt.
„Gnýrinn frá áhorfendunum er ótrúlegur. Ég hef aldrei heyrt annað eins. Andrúmsloftið er mjög sérstakt og það er einstök tilfinning að spila fyrir framan þessa stuðningsmenn,“ sagði Ngumoha um stemninguna á Anfield.