11.11.26 - 13:21
Kári Snorrason
Viðurkenna að Liverpool hefði átt að fá víti gegn Arsenal

Jurrien Timber reif í treyju Alexander Isak í vítateig Arsenal.

Mynd: EPA

Jurrien Timber reif í treyju Alexander Isak í vítateig Arsenal.

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin hefur viðurkennt að Liverpool hefði átt að fá vítaspyrnu gegn Arsenal þegar Jurrien Timber togaði í treyju Alexander Isak í teig Arsenal í viðureign liðanna um þar síðustu helgi.
KMI (Key Match Incidents) nefnd úrvalsdeildarinnar hefur gefið út að um mistök var að ræða en Andy Madley dómari dæmdi ekkert og Stuart Attwell myndbandsdómari greip ekki inn í.
KMI (Key Match Incidents) nefnd úrvalsdeildarinnar hefur gefið út að um mistök var að ræða en Andy Madley dómari dæmdi ekkert og Stuart Attwell myndbandsdómari greip ekki inn í.

TENGT EFNI
Iraola: Synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér
Fjórir af fimm nefndarmönnum KMI töldu að Madley hefði átt að dæma víti. Þá töldu þrír af fimm að VAR hefði átt að senda hann að skjánum til að skoða atvikið.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Arsenal. Eina mark leiksins skoraði Kai Havertz á 16. mínútu en atvikið umdeilda kom upp á 21. mínútu.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Arsenal. Eina mark leiksins skoraði Kai Havertz á 16. mínútu en atvikið umdeilda kom upp á 21. mínútu.

