Fotbolti.net
11.11.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Zidane: Myndi gjarnan vilja stýra Juventus

Zidane: Myndi gjarnan vilja stýra Juventus
Canon

Mynd: EPA

Zinedine Zidane, landsliðsþjálfari Frakklands, segist vilja stýra Juventus einn daginn.

Zidane átti frábæran feril sem fótboltamaður en hann spilaði með Juventus frá 1996-2001 en færði sig síðan til Real Madrid þar sem ferlinum lauk árið 2006.
Hann vann ítölsku deildina tvisvar og liðið komst tvisvar í úrslit Meistaradeildarinnar. Marcello Lippi var við stjórnvölin þegar Zidane skrifaði undir hjá Juventus.

„Já, en maður veit aldrei. Marcello Lippi kenndi mér að við megum aldrei stoppa, við verðum að halda áfram að berjast. Ég spilaði ekki vel fyrst um sinn í Tórínó, stuðningsmenn og fjölmiðlarnir líkuðu ekki við mig," sagði Zidane.

„Ég þjáðist aðeins en Lippi sagði mér að ég myndi spila fyrir hans Juventus lið. Ég á honum allt að þakka. Ég myndi gjarnan vilja vera hjá Juventus einn daginn, hvers vegna ekki? Ef ég held áfram að þjálfa."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.