Fotbolti.net
11.11.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zubimendi með skilaboð til fjölmiðla - „þarf að virða það"

Zubimendi með skilaboð til fjölmiðla - „þarf að virða það"
Canon

Mynd: EPA

Martin Zubimendi, miðjumaður Arsenal, hefur skotið á fjölmiðla fyrir umfjöllunina undanfarið.

Zubimendi gekk til liðs við Arsenal frá Real Sociedad í fyrra en hann hefur ekki verið í jafn stóru hlutverki á þessu tímabili eins og því síðasta. Bruno Guimaraes, Declan Rice og Myles Lewis-Skelly eru allir á undan honum í goggunarröðinni.
Skiptir Zubimendi um félag í Lundúnum?
TENGT EFNI

Skiptir Zubimendi um félag í Lundúnum?

„Ég er stundum hissa á fjölmiðlum, ég átta mig á því að það styttist í félagaskiptagluggann en þeir þurfa að passa sig betur á því sem þeir henda fram," sagði Zubimendi.

„Arteta varaði mig við því að það væru nýir leikmenn komnir og allir fengju tækifæri. Hér erum við að berjast. Ég skil það, við erum með eitt af fimm bestu liðum Evrópu og erum með frábæra leikmenn, ég er rólegur og ánægður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.