Fotbolti.net
12.02.20 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Fyrirliði Lazio í aðgerð - „Lítur varla út eins og ökkli"

Senad Lulic, fyrirliði Lazio.

Senad Lulic, fyrirliði Lazio.

Canon

Mynd: Getty Images

Senad Lulic, fyrirliði Lazio, þarf að fara í aðgerð á vinstri ökkla og er reiknað með því að hann verði frá í mánuð að minnsta kosti.

Varnarmaðurinn hefur verið í vandræðum með ökklann allt tímabilið en Simone Inzaghi, þjálfari liðsins, sagði að „hann liti varla út eins og ökkli" því hann væri svo bólginn.

Þegar Lulic byrjaði að nota hækjur var ákveðið að senda hann indir hnífinn.
Lulic er 34 ára og hefur spilað 20 leiki í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili. Lazio er í baráttu um ítalska meistaratitilinn, er í þriðja sæti deildarinnar. Liðið er aðeins einu stigi á eftir Juventus og Inter.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.