Fotbolti.net
12.02.20 - 10:21
Magnús Már Einarsson

Sakar dómara um leiðinleg ummæli - „Þið eruð ennþá á fallsvæðinu"

Jon Moss.

Jon Moss.

Canon

Mynd: Getty Images

Dan Gosling, miðjumaður Bournemouth, er allt annað en ánægður með Jon Moss sem dæmdi tapleik liðsins gegn Sheffield United um síðustu helgi.
Gosling segir að Moss hafi látið leiðinleg ummæli falla í garð leikmanna Bournemouth í leiknum.

„Þið eruð ennþá á fallsvæðinu," sagði Moss meðal annars auk þess sem hann gagnrýndi frammistöðu leikmanna Bournemouth og sagði þá vera að spila illa.

„Mér fannst hann sýna mikla vanvirðingu með því sem hann sagði. Mér fannst hann vera til skammar," sagði Gosling.„Dómarar töluðu um virðingu fyrir tímabilið en það var engin virðing hjá Jon Moss á sunnudaginn."

Bournemouth ku hafa rætt við ensku úrvalsdeildina og kvartað yfir hegðun Moss í leiknum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.