Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 14:35
Elvar Geir Magnússon
Aron Einar mættur aftur til Katar og á leik í kvöld
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson er mættur aftur til félagsliðs síns, Al-Gharafa í Katar. Hann flúði landið ásamt fjölskyldu sinni vegna þeirra átaka sem geysa í Mið-Austurlöndum.

Sagt er frá þessu á 433.is en fjöldinn allur af Íslendingum sem býr í Mið-Austurlöndum hefur flúið vettvang.

Aron og eiginkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir ásamt börnum þeirra, komu til landsins fyrir helgi en Aron stoppaði stutt við og fór aftur til Katar þar sem Al-Gharafa á leik í dag.

Kristbjörg segir frá því á Instagram síðu sinni að Aron sé kominn aftur til Katar þar sem það sé leikur framundan hjá honum.

Aron sem fagnar 37 ára afmæli sínu í næsta mánuði, hefur spilað í Katar síðustu sjö árin. Hann var fyrirliði gullkynslóðar íslenska landsliðsins
Athugasemdir
banner