Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Bold.dk 
Elías fær mikið hrós - „Að minnsta kosti eitt nafn sem Gibbs-White man eftir"
Leikmenn Midtjylland fagna sigurmarkinu
Leikmenn Midtjylland fagna sigurmarkinu
Mynd: EPA
Danska liðið Midtjylland gerði sér lítið fyrir og lagði Nottingham Forest 1-0 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á City Ground í Nottingham í kvöld.

Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem liðin mættust en Midtjylland vann 3-2 á City Ground í deildarkeppninni í október.

Danski miðillinn Bold skaut á Gibbs-White í október að hann hafi ekki munað nafnið á danska liðinu fyrir leikinn. Bold var með umfjöllun um leikinn í kvöld og þar fékk Elías Rafn Ólafsson góða umsögn fyrir frábæra frammistöðu sína í markinu í kvöld.

Þar segir að Gibbs-White muni ekki gleyma nafni Elíasar.

„Englendingurinn hefur líklega lært sína lexíu fyrir leikinn í dag en ef ekki tryggði frábær björgun Elíasar Ólafssonar á langskoti hans að það er að minnsta kosti eitt nafn sem leikmaður Forest man eftir þegar hann fer að sofa í kvöld," segir í umfjöllun Bold.
Athugasemdir
banner