Fotbolti.net
12.04.19 - 22:47
Ívan Guðjón Baldursson

Rodgers: Tókst ekki að brjóta vörnina niður

Rodgers: Tókst ekki að brjóta vörnina niður
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City hafði unnið fjóra leiki í röð undir stjórn Brendan Rodgers fyrir kvöldið í kvöld.
Leicester tapaði þá óvænt á heimavelli gegn Newcastle í jöfnum leik, þar sem heimamenn héldu boltanum á meðan gestirnir lágu á eigin vallarhelmingi og beittu skyndisóknum.

„Það er erfitt að brjóta svona lið niður, við þurfum að bæta okkur í þessu. Það var ekki mikið í þessum leik, okkur tókst einfaldlega ekki að brjóta vörnina niður," sagði Rodgers að leikslokum.

„Við munum læra af þessu, þess vegna var ég ráðinn hingað. Við færðum boltann ekki nógu hratt og leyfðum þeim að loka sér.

„Við þurfum að vinna svona leiki í framtíðinni. Þetta var lærdómsríkur tapleikur."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.