Fotbolti.net
12.05.21 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kallað eftir því að Man Utd verði refsað - Klopp ekki sammála

Solskjær gerði tíu breytingar.

Solskjær gerði tíu breytingar.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United stillti upp mjög breyttu liði gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, gerði tíu breytingar á liðinu frá sigurleik gegn Aston Villa um síðustu helgi. Það er mjög þétt spilað og Solskjær ákvað að hvíla margan manninn í þessum leik.

Anthony Elanga, 19 ára sænskur vængmaður, spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið og Amad Diallo lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni.

Byrjunarlið Manchester United gegn Leicester: De Gea, Williams, Bailly, Tuanzebe, Telles, Matic, van de Beek, Mata, Amad, Greenwood, Elanga.

United endaði á því að tapa leiknum, 1-2, en það eru úrslit sem geta haft mikil áhrif á Meistaradeildarbaráttuna. Það hafa enhverjir kallað eftir því að Man Utd verði refsað fyrir að breyta liði sínu eins mikið og þeir gerðu.

Trevor Sinclair, fyrrum leikmaður Manchester City, kallaði þetta vanvirðingu og segir að það eigi að taka sex stig af Man Utd.

„Þetta er B-liðið þeirra, þetta er vanvirðing og þetta hefur mikil áhrif á baráttuna um efstu fjögur sætin," sagði Sinclair á Talksport.

Man Utd mætir Liverpool á morgun í leik sem átti að fara fram í byrjun þessa mánaðar. Honum var frestað vegna mótmæla stuðningsmanna Man Utd á Old Trafford. Hann var settur á morgundaginn og ákvað Solskjær því að hvíla menn fyrir þann leik.

„Af hverju gerðu félagið og lögreglan ekki meira til að koma í veg fyrir að fólk kæmist inn á völlinn? Ég held að það þurfi að refsa Man Utd. Þrjú stig er ekki nóg því það gerir ekki nægilega mikið... mér finnst að það ætti að taka sex stig af Man Utd."

Man Utd er búið að tryggja sér Meistaradeildarsæti og sá sér þess vegna fært að hvíla menn í þessum leik. Þetta gæti hins vegar haft mikil áhrif á félag eins og Liverpool því núna er Leicester í þriðja sæti, níu stigum á undan Liverpool. Lærisveinar Jurgen Klopp í Liverpool eiga fjóra leiki eftir og Leicester á tvo.

Richard Keys, sérfræðingur BeIN Sports finnst að Man Utd eigi að stilla upp sama byrjunarliði gegn Liverpool á morgun sem refsingu.

Klopp ekki sammála
Klopp, stjóri Liverpool, hefur tjáð sig um málið og hann er ekki sammála sérfræðingunum. Hann skilur stöðuna sem Solskjær er í.

„Ég bjóst við þessu byrjunarliði, þeir eru að spila sunnudag, þriðjudag og fimmtudag. Það er glæpur. Þetta er ekki Ole eða leikmönnunum að kenna. Ég hefði gert það sama og hann," sagði Klopp.
Sigur Leicester gæti haft mikil áhrif á Meistaradeildarbaráttu Liverpool.

Sigur Leicester gæti haft mikil áhrif á Meistaradeildarbaráttu Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.