Fotbolti.net
12.06.19 - 13:19
Elvar Geir Magnússon

Bandaríska landsliðið fær að heyra það - „Virðingarleysi og til skammar"

Alex Morgan átti sannkallaðan stórleik. Hún skoraði fimm mörk og lagði upp þrjú.

Alex Morgan átti sannkallaðan stórleik. Hún skoraði fimm mörk og lagði upp þrjú.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Bandaríska kvennalandsliðið <a href="https://fotbolti.net/fullStory.php?id=278545" target="_blank">vann 13-0 sigur gegn Tælandi</a> á HM í Frakklandi í gær en þessi niðurlæging er stærsti sigurinn í sögu keppninnar.

Bandaríkin leiddu andstæðinga sína til slátrunar og fögnuðu leikmenn liðsins hverju marki af ákefð og innlifun.

Margir telja að með því hafi liðið sýnt andstæðingum sínum óvirðingu. Rætt var um málið í HM-stofunni í Kanada en þar fékk bandaríska liðið svo sannarlega að heyra það.
Talað var um skammarlega vanvirðingu frá ríkjandi heimsmeisturum en margir sparkspekingar eru ósammála og ósáttir við þá umræðu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.