Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   lau 12. júní 2021 19:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári: Þá er þetta besti sóknarmaður deildarinnar, eða einn af þeim
Kári Árnason.
Kári Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við ætlum ekkert að hætta hérna," sagði landsliðsmaðurinn Kári Árnason eftir 2-0 sigur gegn FH í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Víkingar eru komnir á topp deildarinnar og eru þeir eina taplausa liðið eftir stórkostlega byrjun á mótinu.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 FH

„Gott lið eins og FH á alltaf sína kafla. Þeir áttu kafla þar sem þeir héldu boltanum mikið betur en við í seinni hálfleik. Engu að síður var þetta þægilegt, kannski fyrir utan fyrstu 15 mínúturnar þar sem við liggjum svolítið lágt."

Nikolaj Hansen hefur verið frábær í sumar og er hann markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar. Hann skoraði bæði mörk Víkinga í dag.

„Ég hef kannski ekki verið að segja það í fjölmiðlum en ég veit hvað þessir strákar geta. Þetta snýst um að þeir hafi trú á því. Nikolaj er á sínum degi einn af þeim erfiðustu að eiga við, ég þekki það af eigin reynslu."

„Þegar hann bætir við markaskorun í sinn leik, þá er þetta besti sóknarmaður deildarinnar, eða einn af þeim."

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner