Fotbolti.net
12.07.20 - 19:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bjarni Jó: Of löng bið en samt alveg þess virði

Auglýsing
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra.

Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Ég var ánægður með spilamennskuna," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra, eftir 1-0 sigur á Þrótti í Lengjudeildinni.

„Mér fannst við bíða alltof lengi eftir markinu en það var nú þessi virði samt. Það er tæpur leikmannahópurinn hjá okkur og það var geggjað að ná að klára þetta."
„Við erum með alltof marga leikmenn tæpa og það hressist nú vonandi í næstu viku. Þetta var svakalega mikilvægur leikur fyrir okkur að vinna."

„Við erum komnir í sjö stig og það er bara þrælgott. Við erum búnir að spila mikið á sama liðinu. Að mínu mati áttum við alla vega stig úr Grindavíkurleiknum. Þetta var erfið vika en hún skilaði sex stigum og ég er sáttur með það."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.