Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   sun 12. júlí 2020 19:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnar: Ekki skorað frá því í fyrsta leik og það veldur áhyggjum
Lengjudeildin
Gunnar Guðmundsson þjálfari Þróttar.
Gunnar Guðmundsson þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði," sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari Þróttar, eftir 1-0 tap gegn Vestra á útivelli í Lengjudeild karla. Vestri skoraði sigurmarkið í leiknum undir lokin í frekar jöfnum leik.

„Við komum hingað til að sækja alla vega annað stigið. Mér fannst Vestri kannski ívið sterkari en við áttum möguleika. Auðvitað eru það vonbrigði að fá á sig mark á lokamínútunum."

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  0 Þróttur R.

Þróttur er á botni Lengjudeildarinnar án stiga eftir fimm leiki.

„Við erum alltaf að reyna að laga og bæta. Þegar þú ert ekki að taka inn stig verður þetta alltaf þyngra og þyngra. Við þurfum bara að standa saman, þétta raðirnar og halda áfram. Það er ekkert annað í boði."

„Við höfum ekki skorað frá því í fyrsta leik og það veldur mér áhyggjum. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner