Atli Eðvaldsson var borinn til grafar í dag en hann lést í síðustu viku eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Atli er fyrrum landsliðsmaður og landsliðsþjálfari en hann átti einnig góðan feril í atvinnumennsku erlendis.
Á Íslandi lék Atli með Val, KR og HK. Hann hélt út í atvinnumennsku árið 1980 og spilaði á atvinnumannaferli sínum með liðunum Borussia Dortmund, Fortuna Düsseldorf, Uerdingen og TuRU Düsseldorf í Þýskalandi og Genclerbirligi í Tyrklandi.
Í atvinnumennskunni skoraði Atli 72 mörk: 11 fyrir Borussia Dortmund, 39 fyrir Fortuna Düsseldorf, 11 fyrir Uerdingen, 6 fyrir TuRU Düsseldorf og 5 fyrir Gençlerbirliği.
Íslendingavaktin hefur klippt saman skemmtilegt myndband með klippum af ferli Atla erlendis.
Smelltu hér til að sjá myndbandið
Athugasemdir