Ronaldo Koeman, þjálfari Barcelona, hefur hrósað Lionel Messi eftir að hann sneri aftur til æfinga hjá Barcelona.
Koeman tók við Barcelona eftir að liðinu var slátrað af Bayern Munchen í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Í kjölfarið vildi Lionel Messi fara frá félaginu og mætti hann ekki til æfinga.
Það hefur nú breyst og verður Messi áfram hjá Barcelona en töluverðar breytingar verða hins vegar á leikmannahópnum. Koeman hrósaði Messi og kallaði hann þann besta.
„Hann er sá besti. Þegar Messi er heill þá er hann svo mikilvægur leikmaður fyrir okkur og hann hefur sýnt það í mörg ár. Ég vona að hann geti haldið því áfram á þessu tímabili," sagði Koeman.
Fyrstu tveir leikir hjá Barcelona í deildinni hafa verið frestaðir en liðið fær lengra frí vegna Evrópukeppni. Fyrsti leikur Barcelona verður gegn Villareal þann 27. september.
Athugasemdir