PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   lau 12. september 2020 17:22
Birna Rún Erlendsdóttir
Óttar: Þessi leikur var mjög mikilvægur fyrir okkur að klára
Selfoss vann fimm marka sigur gegn KR í Pepsi Max deild kvenna.
Kvenaboltinn
Óttar Guðlaugsson, aðstoðarþjálfari Selfoss.
Óttar Guðlaugsson, aðstoðarþjálfari Selfoss.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara mjög góð tilfinning að hafa klárað þennan leik. Þessi leikur var mjög mikilvægur fyrir okkur að klára og við vorum bara vel undirbúin fyrir þennan leik. Við vissum það líka að það er alltaf erfitt að mæta KR, það er alltaf eitthver fætingur þarna á milli okkar.“ sagði Óttar Gauðlaugsson, aðstoðarþjálfari Selfoss, eftir 5-0 sigur gegn KR í Pepsi Max deild kvenna. 

Lestu um leikinn: KR 0 -  5 Selfoss

„Við vorum búin að hugsa það svolítið hvernig við áttum að fara í þennan leik og við ákváðum á endanum að við ætluðum að vera þétt og beita skyndisóknum og ná að nýta hraðann okkar á móti vörn KR og reyna finna þær glufur sem við vorum búin að hugsa út í. Það gekk mjög vel upp í dag og bara mjög ánægður að sjá hvernig útkoman var.“

„Við erum bara að einbeita okkur að því að taka bara næsta leik og fókusera bara á næsta leik. Næsti leikur er bara mikilvægasti leikurinn á tímabilinu og það er bara svolítið okkar stefna út þetta tímabil að vinna næsta leik. Síðan þegar Íslandsmótið er búið þá setjum fullan fókus á bikarinn og komum í hann alveg dýrvitlaus.“


Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner