Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 12. nóvember 2020 11:12
Magnús Már Einarsson
UEFA fjallar um Albert og Gumma Ben - Brotnir blómavasar á heimilinu
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
UEFA birti í dag myndband til upphitunar fyrir leik Íslands og Ungverjalands í kvöld.

Þar er fjallað um feðgana Guðmund Benediktsson og Albert Guðmundsson.

Gummi Ben sló í gegn fyrir lýsingar sínar á EM 2016.

Sonur hans Albert er í íslenska landsliðinu í dag og spilar í kvöld upp á að komast á EM á næsta ári.

Gummi mun að sjálfsögðu lýsa leik kvöldsins á Stöð 2 Sport.

„Að sjá son sinn með landsliðinu gerir mig mjög stoltan, auðvitað. Þetta er eitthvað sem ég bjóst bara við frá því að hann var smástrakur," sagði Gummi.

Í innslaginu talar Gummi einnig um það þegar þeir feðgar spiluðu fótbolta á heimilinu á yngri árum og brutu blómavasa.

Hér að neðan má þetta skemmtilega innslag.


Athugasemdir
banner
banner
banner