Fotbolti.net
12.11.26 - 19:36
Brynjar Ingi Erluson

Framtíðarstjarna Liverpool að framlengja

Framtíðarstjarna Liverpool að framlengja
Canon

Mynd: EPA

Enski táningurinn Trey Nyoni er í þann mund að framlengja samning sinn við úrvalsdeildarfélagið Liverpool.
Nyoni, sem er 19 ára gamall, hefur brotist inn í byrjunarlið Liverpool á þessari leiktíð og fengið mikið traust frá Andoni Iraola.

Hann hefur komið með mikinn ferskleika inn í liðið og er talinn ein af framtíðarstjörnum félagsins.

Nyoni kom til Liverpool frá Leicester fyrir þremur árum og stendur nú til að umbuna honum fyrir frábæra frammistöðu með nýjum samningi.

Ben Jacobs hjá talkSPORT segir Liverpool í viðræðum við Nyoni og er búist við að samkomulag náist í yfirstandandi landsleikjaglugga. Gæti nýr samningur því verið kynntur á næstu dögum eða skömmu eftir að landsleikjaverkefninu lýkur.

Liverpool er einnig í viðræðum við hitt ungstirnið, Rio Ngumoha, sem er samningsbundinn félaginu til ársins 2028.

Ngumoha hefur verið orðaður við Bayern München í Þýskalandi, en Liverpool vill tryggja framtíð hans hjá félaginu sem fyrst. Viðræðurnar eru sagðar langt komnar og talið að stutt sé í samkomulag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.