Fotbolti.net
12.11.26 - 14:47
Kári Snorrason

Fyrirliðinn framlengir við FH

Fyrirliðinn framlengir við FH
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Óli Ólafsson, fyrirliði FH, hefur framlengt samning sinn við Fimleikafélagið og er hann nú samningsbundinn liðinu út tímabilið 2029.

Fyrri samningur Ísaks var í gildi út næsta tímabil.

„Það er mikill heiður að framlengja við Fimleikafélagið og halda þessari vegferð áfram. Ég hef mikla trú á því sem við erum að byggja upp og er klár í að gefa allt fyrir félagið næstu árin,” er haft eftir Ísaki í tilkynningu FH.
Ísak lék 19 leiki með FH í Bestu deildinni á liðnu tímabili en hann gekk í raðir félagsins frá Esbjerg fyrir tímabilið 2024.

Hann var gerður að fyrirliða FH í vor en hann tók við bandinu af Birni Daníel Sverrissyni sem tók við Sindra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.