Fotbolti.net
12.11.26 - 20:48
Brynjar Ingi Erluson

Porro á óskalista þriggja félaga í ensku úrvalsdeildinni

Pedro Porro

Pedro Porro

Canon

Mynd: EPA

Spænski bakvörðurinn Pedro Porro er á óskalista Chelsea, Liverpool og Manchester City. Þetta kemur fram á TeamTalk.
Öll þrjú félögin hafa lagt fram formlega fyrirspurn um Porro, sem er á mála hjá Tottenham, og vilja kanna hvort hann sé fáanlegur í janúarglugganum.

Porro er talinn einn besti hægri bakvörður heims og varð meðal annars heimsmeistari með Spáni í sumar. Hann er sagður vera farinn að íhuga framtíð sína hjá Tottenham eftir slakt gengi liðsins undanfarin ár.

Chelsea er sagt vera að skoða möguleikann á að styrkja bakvarðastöðuna og er félagið jafnframt reiðubúið að selja Frakkann Malo Gusto.

Liverpool er í svipaðri stöðu, en þeir Jeremie Frimpong og Conor Bradley eru báðir meiddir og hefur Ronald Araujo þurft að leysa stöðuna á meðan.

Tottenham gæti verið reiðubúið að selja Porro þrátt fyrir að hann hafi framlengt samning sinn fyrir aðeins nokkrum mánuðum. Það eru þó spænsku stórveldin Barcelona og Real Madrid sem eru sögð heilla hann mest.

Tottenham myndi hins vegar ekki gera enskum keppinautum sínum auðvelt fyrir í samningaviðræðum og er talið að félagið myndi setja töluvert hærri verðmiða á Porro fyrir ensku félögin en þau spænsku.

Achraf Hakimi, leikmaður PSG, er dýrasti hægri bakvörður sögunnar eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Inter fyrir um 65 milljónir punda.

Talið er að Porro myndi kosta töluvert meira, enda er hann samningsbundinn Tottenham til ársins 2031.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.