12.11.26 - 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Ráðningin sýnir að Glazer-fjölskyldan ræður enn ferðinni

Glazer-fjölskyldan ræður enn ríkjum

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino er að taka við United

Mynd: EPA

Glazer-fjölskyldan ræður enn ríkjum

Mynd: EPA
Manchester United er að ganga frá ráðningu argentínska þjálfarans Mauricio Pochettino, en samkvæmt Daily Mail sýnir ráðningin að Glazer-fjölskyldan hefur enn mikil áhrif á ákvarðanir félagsins í fótboltamálum.
Michael Carrick var rekinn frá United í dag eftir slæmt gengi liðsins á tímabilinu.
Omar Berrada, framkvæmdastjóri félagsins, og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, funduðu með Sir Jim Ratcliffe, einum af eigendum United, í Mónakó þar sem ákvörðun var tekin um að láta Carrick taka pokann sinn.
Í kjölfarið hefur komið fram að félagið sé í viðræðum við Mauricio Pochettino og er búist við að ráðning hans verði staðfest á næstu dögum. Pochettino var þó ekki sá maður sem Ratcliffe og félagar hans hjá INEOS vildu fá til félagsins.
Þeir vildu frekar ráða Eddie Howe, sem náði góðum árangri með Newcastle áður en hann hætti hjá félaginu í sumar.
Það var hins vegar Glazer-fjölskyldan sem vildi fá Pochettino, en hann hefur stýrt bandaríska landsliðinu síðasta árið.
Þegar Ratcliffe keypti 27,7 prósenta hlut í United árið 2024 átti hann ásamt INEOS að taka alfarið yfir fótboltamál félagsins. Ráðning Pochettino bendir hins vegar til þess að Glazer-fjölskyldan hafi enn töluverð áhrif á ákvarðanir um hver stýrir liðinu.
Stuðningsmenn hafa lengi kallað eftir því að fjölskyldan selji United og samkvæmt fréttum erlendis er hún nú reiðubúin að láta félagið af hendi. Talið er að Glazer-fjölskyldan vilji fá um fimm milljarða punda fyrir hlut sinn.
Fjölskyldan keypti sig fyrst inn í United árið 2003 og gekk síðan frá yfirtöku á félaginu tveimur árum síðar.
Stuðningsmenn hafa lengi verið ósáttir við eignarhald Glazer-fjölskyldunnar, ekki síst vegna þeirrar skuldastöðu sem félagið hefur verið í, skorts á fjárfestingum í innviðum og slæms gengis liðsins eftir að Sir Alex Ferguson lét af störfum árið 2013.
Það sem hefur þó sérstaklega farið fyrir brjóstið á stuðningsmönnum er hvernig fjölskyldan fjármagnaði yfirtökuna árið 2005.
Þegar Glazer-fjölskyldan keypti United lagði hún aðeins fram um 270 milljónir punda af eigin fé. Afgangurinn var fjármagnaður með lánum og voru skuldir upp á hundruð milljóna punda lagðar á félagið sjálft.