Fotbolti.net
12.11.26 - 22:47
Brynjar Ingi Erluson

Rogers tekur upp hanskann fyrir Palmer

Morgan Rogers og Cole Palmer eru perluvinir

Morgan Rogers og Cole Palmer eru perluvinir

Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, hefur tekið upp hanskann fyrir samherja sinn Cole Palmer og komið honum til varnar.
Þjóðadeildin: Ítalía á toppinn eftir sigur á Frökkum - Kane kom Englendingum í átta liða úrslit
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Ítalía á toppinn eftir sigur á Frökkum - Kane kom Englendingum í átta liða úrslit

Rogers ræddi við fjölmiðla eftir 2-1 sigur Englands á Króatíu þar sem Englendingar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar.

Hann var meðal annars spurður út í Palmer, sem hefur sætt gagnrýni fyrir að vera ekki nægilega skuldbundinn enska landsliðinu. Thomas Tuchel, þjálfari Englands, valdi hann ekki í hópinn fyrir þetta verkefni, en Palmer dró sig einnig úr hópnum í síðasta landsleikjaverkefni og var þar að auki ekki valinn í HM-hópinn.

Sumir hafa haldið því fram að það andi köldu á milli Palmer og Tuchel, en Rogers segir ekkert hæft í þeim fullyrðingum og vísar gagnrýninni alfarið á bug.

„Þetta er lygi. Hann vill vera hér og vera valinn í hópinn. Hann vildi koma og spila fyrir hönd þjóðarinnar, rétt eins og hann hefur alltaf viljað gera, en fólk les eitthvað í fjölmiðlum og þá er mjög auðvelt að halda alls konar hlutum fram.“

„Við vitum öll hversu erfitt ár hann hefur átt vegna meiðsla og ég veit persónulega að hann hefur þurft að gæta að álaginu síðan. Hann hefur átt erfitt og ekki liðið eins og hann væri hundrað prósent heill á vellinum. Hann vill vera hér og geta sýnt bestu útgáfuna af sjálfum sér. Auðvitað vill hann það, hver myndi ekki vilja það?“

„En hann verður líka að hugsa um líkamann. Hann vill geta spilað næstu 10 til 15 árin og þarf því að gæta að álaginu. Ef hann þarf að gera það til skamms tíma til að það gagnist honum til framtíðar, þá verður hann að gera það og við verðum að styðja hann í því. Þetta hefur ekkert með England að gera eða að hann vilji ekki spila fyrir landsliðið. Það er algjört kjaftæði að fólk skuli efast um vilja hans til að spila fyrir England.“

„Maður sér gleðina, brosið á vörum hans og hversu mikið hann elskar fótboltann. Ég skil því ekki þessa gagnrýni og hann skilur hana ekki heldur, en þetta er eitthvað sem hann þarf að takast á við. Ég get þó fullvissað ykkur um að hann vill vera hér og spila fyrir land og þjóð,“
sagði Rogers.

Rogers vonast til að Palmer snúi aftur í enska landsliðið sem allra fyrst.

„Auðvitað vil ég það. Hann er ótrúlegur leikmaður og frábær manneskja. Þetta er leikmaður sem maður vill sjá í treyju enska landsliðsins. Hann býr yfir gríðarlegum gæðum og hæfileikum. Við vitum öll hvað hann getur gert og hvað hann hefur þegar afrekað, þannig að auðvitað viljum við sjá hann aftur í landsliðstreyjunni og vonandi verður það fyrr en síðar,“ sagði Rogers í lok viðtals.
Cole Palmer hefur ekki spilað með enska landsliðinu síðan í mars

Cole Palmer hefur ekki spilað með enska landsliðinu síðan í mars

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel ákvað að velja Palmer ekki í hópinn fyrir þetta verkefni

Thomas Tuchel ákvað að velja Palmer ekki í hópinn fyrir þetta verkefni

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.