Steini þakkar Dagnýju Brynjars: „Sannur liðsmaður“

Dagný skoraði 38 mörk í 122 A-landsleikjum.

Mynd: Selfoss

Dagný skoraði 38 mörk í 122 A-landsleikjum.

Mynd: Selfoss

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, segir Dagnýju Brynjarsdóttur eiga þakkir skildar fyrir framlag sitt til íslenska landsliðsins. Hann var spurður út í feril hennar á blaðamannafundi í dag eftir að hún tilkynnti að knattspyrnuferlinum væri lokið.
Dagný kveður völlinn 35 ára gömul, eftir feril sem skilaði 122 A-landsleikjum og 38 mörkum fyrir Ísland.
„Hún stóð sig gríðarlega vel með íslenska landsliðinu,“ sagði Steini.
Steini sagði Dagnýju hafa verið leiðtoga inni á vellinum og sýnt mikil gæði með landsliðinu. Hann nefndi sérstaklega styrk hennar í loftinu og markaskorunina úr miðjustöðunni.
„Gríðarlega sterk í loftinu og sannur liðsmaður inni á vellinum.“
Þá lagði hann áherslu á liðshugsun hennar og sagði hana margoft hafa sýnt hversu mikilvæg hún væri liðinu og lauk svarinu á að þakka henni fyrir árin með landsliðinu.
„Hún á bara þakkir skildar,“ sagði Þorsteinn um framlag hennar í landsliðsbúningnum.
Dagný lék meðal annars með Bayern München, Portland Thorns og West Ham á ferlinum. Hún var fyrirliði West Ham og lauk síðan keppnisferlinum hjá Selfossi í Lengjudeildinni sl. sumar.
