Fotbolti.net
12.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vladan kveður Vestra og heldur í höfuðborgina

Vladan kveður Vestra og heldur í höfuðborgina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vladan Dogatovic er hættur sem markmannsþjálfari Vestra en hann er á leið á höfuðborgarsvæðið.

„Vladan hefur ávallt lagt sig allan fram fyrir félagið og því mikill missir fyrir félagið að hann sé að breyta til. Vladan hefur hug á að færa sig á höfuðborgarsvæðið og því spennandi að sjá hvað okkar maður tekur sér fyrir hendur," segir í tilkynningu frá Vestra.
„Ég vil þakka öllum hjá félaginu fyrir þrjú yndisleg ár. Við náum sögulegum árangri fyrir félagið, að vinna bikar og spila í Evrópudeildinni," sagði Vladan.

„Ég á sérstakar þakkir skildar til Davíð Smára (Lamude) og Samma (Samúel Samúelsson, stjórnarmaður hjá Vestra) sem komu með mig inn í félagið og gáfu mér tækifæri til að vinna hjá því. Þakkir til markverða minna, leikmanna, þjálfara sem ég vann með síðustu þrjú ár án nokkurra vandamála. Þakkir til stuðningsmanna og fólksins í bænum fyrir frábæran stuðning. Ég tek nú að mér nýja áskorun á ferlinum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.