Fotbolti.net
13.01.20 - 21:30
Aksentije Milisic
Ítalski boltinn

Sarri: Ég er ennþá sami rasshausinn samkvæmt eiginkonu minni

Sarri: Ég er ennþá sami rasshausinn samkvæmt eiginkonu minni
Canon

Mynd: Getty Images

Maurizio Sarri, þjálfari Juventus, gefur lítið fyrir það að liðið hans sé „vetrarmeistari" en Juventus er á toppnum þegar deildin er hálfnuð.

Sarri hefur reynslu af því að vera á toppnum eftir hálft tímabil en það gerðist í tvígang er hann þjálfaði Napoli en ekki tókst honum að vinna deildina. Juventus lagði Roma að velli í hörkuleik í gærkvöldi og komst liðið þannig á toppinn.
„Vetrarmeistarar? Eiginkona mín segir að ég sé ennþá sami rasshausinn og áður," sagði Sarri léttur.

„Ég varð vetrarmeistari tvisvar með Napoli án þess að ná að vinna deildina. Ég fann það út að það á ekki að taka mark á svona tölfræði."

Næsti deildarleikur Juventus er heimaleikur gegn Parma en ljóst er að hart verður barist um titilinn. Inter er tveimur stigum á eftir Juventus en Lazio er heldur ekki langt á eftir. Liðið hefur unnið tíu leiki í röð og er sex stigum á eftir Juventus með leik til góða.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.