Fotbolti.net
13.01.21 - 13:40
Magnús Már Einarsson

Gary Neville: Hefði aldrei ímyndað mér Man Utd í titilbaráttu

Gary Neville

Gary Neville

Canon

Mynd: Getty Images

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, telur að liðið geti unnið ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili. Manchester United fór á toppinn í deildinni með sigri á Burnley í gær en þetta er í fyrsta skipti sem liðið er á toppnum eftir 17 leiki síðan tímabiið 2012/2013 undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Framundan er toppslagur gegn erkifjendunum í Liverpool á sunnudaginn og Neville fer bjartsýnn inn í þann leik.
„Ég held að enginn sé að segja að Manchester United muni vinna deildina en sú staðreynd að þeir séu í titilbaráttu...wow. Ég hefði aldrei ímyndað mér það," sagði Neville.

„Þetta er skrýtið tímabil. Af hverju ættu stuðningsmenn Manchester United ekki að trúa? Af hverju ættu þeir ekki að hafa trú á þessu liði? Horfið á fremstu þrjá, miðjumennina fjóra, horfið á Bruno Fernndes - Þeir hafa nokkra stórkostlega leikmenn."

„Önnur lið eru ekki í frábærum gír. Man City eru þarna rólegir, það er enginn að tala mikið um þá en þeir eru að komast í mjög gott stand og virka mjög hættulegir. Næstu dagar snúast um að hafa smá gaman. Þetta verða ekki þægilegir dagar fyrir Liverpool."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Coventry6-66
17Fulham7-35
18Nott. Forest7-45
19Sunderland7-84
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.