Fotbolti.net
13.01.22 - 13:20
Elvar Geir Magnússon

Bonucci við stjórnarmann Inter: Ég mun drepa þig

Leonardo Bonucci.

Leonardo Bonucci.

Canon

Mynd: EPA

Leonardo Bonucci, varnarmaður Juventus, varð trítilóður í garð stjórnarmanns Inter í gær og gæti verið dæmdur í leikbann fyrir hegðun sína.

Það var hiti á hliðarlínunni þegar Inter vann dramatískan 2-1 sigur á Juventus í ítalska Ofurbikarnum í gær með flautumarki í framlengingu.

Cristiano Mozzillo stjórnarmaður Inter fagnaði sigurmarkinu ákaft. Fögnuðurinn fór eitthvað í taugarnar á Bonucci sem stóð við hliðarlínuna en hann átti að koma inn sem varamaður til að taka víti í vítaspyrnukeppni.

Bonucci rauk að Mozzillo og samkvæmt ítölskum fjölmiðlum sagði hann:
„Þú fagnar ekki í andlitið á mér, hvað í fjandanum ertu að gera? Ég mun drepa þig!" sagði Bonucci við Mozzillo samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.

Eftirlitsmenn á leiknum urðu vitni að samskiptum en ekki er vitað hvort þeir hafi tilkynnt uppákomuna. Bonucci gæti verið dæmdur í bann ef það var gert.

Uppfært 15:57: Bonucci hefur verið sektaður en sleppur við leikbann. Hann fékk 10 þúsund punda sekt.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.