Tíu ný nöfn í Pepsi Max sem spennandi verður að fylgjast með

Atli Barkarson (Víkingur) - 19 ára húsvískur vinstri bakvörður sem kom frá Noregi. Hefur leikið fjölda leikja fyrir unglingalandslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Heimisson (Valur) - Tvítugur miðjumaður sem lék í yngri flokkum Þórs á Akureyri en hann hefur spilað með unglinga- og varaliði Heerenveen í Hollandi undanfarin þrjú ár.

Mynd: Valur

Hákon Rafn Valdimarsson (Grótta) - 18 ára markvörður Gróttu sem var valinn í lið ársins í 1. deild í fyrra. Unglingalandsliðsmaður sem erlend félög eru að fylgjast með.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Helgi Guðjónsson (Víkingur) - Skoraði fimmtán mörk fyrir Fram í Inkasso-deildinni í fyrra og fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar í efstu deild.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Magnus Egilsson (Valur) - Færeyskur vinstri bakvörður sem Heimir Guðjónsson tók með sér frá HB í Færeyjum. Mjög traustur leikmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikkel Qvist (KA) - Hávaxinn miðvörður sem á marga leiki í dönsku úrvalsdeildinni og getur tekið ótrúlega löng innköst!

Mynd: KA

Pétur Theodór Árnason (Grótta) - Hávaxinn sóknarmaður sem sprakk út í Inkasso-deildinni og skoraði grimmt. Hvernig tekst hann á við sterkari deild?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri Þorkelsson (Breiðabik) - Örvfættur leikmaður sem vakti verðskuldaða athygli með Aftureldingu í fyrra. Fær nú tækifæri á stóra sviðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Margeir Hauksson (KA) - Átján ára varnarsinnaður miðjumaður sem KA fékk frá Dalvík/Reyni og hefur leikið virkilega vel á undirbúningstímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir) - Hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Vestra síðustu þrjú ár. Hann var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar en ákvað að taka stökk upp um tvær deildir.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson






