Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 13. febrúar 2021 13:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eins og það hvíli bölvun á miðvörðum Liverpool
Ben Davies á æfingu hjá Liverpool.
Ben Davies á æfingu hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Ben Davies er ekki í leikmannahópi Liverpool gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í dag vegna meiðsla.

Sjá einnig:
Byrjunarlið Leicester og Liverpool: Frumraun Kabak

„Því miður varð Ben Davies fyrir litlum meiðslum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, fyrir leikinn.

Davies er 25 ára gamall varnarmaður sem var fenginn til Liverpool frá Preston til að auka breiddina í varnarlínunni vegna mikilla meiðsla leikmanna félagsins.

Fabinho er að glíma við meiðsli og er ekki heldur með í dag. Ozan Kabak, sem er í láni frá Schalke, og fyrirliðinn Jordan Henderson leika í miðverði hjá Liverpool í dag. Miðverðirnir Virgil van Dijk, Joe Gomez og Joel Matip eru allir frá út tímabilið. Það er eins og það sé einhver bölvun á miðvarðarstöðunni hjá félaginu.

Það er reyndar ekki bara miðvarðastaðan því James Milner fór meiddur af velli í fyrri hálfleik gegn Leicester.



Athugasemdir
banner
banner
banner