Danijel Dejan Djuric var í morgun tilkynntur sem nýr leikmaður KA. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net nam kaupverðið 18 milljónum króna sem gerir Danijel að næst dýrasta leikmanni í sögu efstu deildar, Gylfi Þór Sigurðsson trónir á toppi listans.
Í tilefni skipta Danijels hefur Fótbolti.net tekið saman lista yfir tíu dýrustu kaup Bestu deildarinnar. Breiðablik á alls fimm fulltrúa á listanum þar á eftir kemur Víkingur með tvo.
Í tilefni skipta Danijels hefur Fótbolti.net tekið saman lista yfir tíu dýrustu kaup Bestu deildarinnar. Breiðablik á alls fimm fulltrúa á listanum þar á eftir kemur Víkingur með tvo.
Gylfi Þór Sigurðsson - 20 milljónir
Í Víking frá Val, 2025
Danijel Dejan Djuric - 18 milljónir
Í KA frá NK Istra, 2026
Ágúst Orri Þorsteinsson - 17 milljónir
Í Breiðablik frá Genoa, 2024
Óli Valur Ómarsson - 16 milljónir
Í Breiðablik frá Sirius, 2024
Ívar Örn Árnason - 14 milljónir
Í Breiðablik frá KA, 2026
Benedikt Warén - 13 milljónir
Í Stjörnuna frá Vestra, 2024
Atli Þór Jónasson - 11 milljónir
Í Víking frá HK, 2025
Guðmundur Andri Tryggvason - 11 milljónir
Í Val frá Start, 2021
Aron Bjarnason - 10 milljónir
Í Breiðablik frá Sirius, 2024
Patrik Johannessen - 8.5 milljónir
Í Breiðablik frá Keflavík, 2022
Kaupverð á leikmönnum á Íslandi eru ekki gefin upp og eru því tölurnar sem um ræðir ekki staðfestar frá félögunum. Það er möguleiki á því að einhver villa sé í þessari samantekt. Hægt að senda ábendingar í tölvupósti á [email protected]
Athugasemdir


