Lionel Messi verður hvíldur í dag þegar Barcelona heimsækir botnlið spænsku úrvalsdeildarinnar, Huesca.
Barcelona og Manchester United mætast í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudagskvöld á Camp Nou. Barcelona vann fyrri leikinn á Old Trafford, 0-1.
Huesca er sex stigum frá öruggu sæti og virðist ekkert ætla að koma í veg fyrir það að liðið falli. Barcelona er hinsvegar með ellefu stiga forskot á toppi deildarinnar þegar sjö leikir eru eftir.
Messi verður ekki eini leikmaður Barcelona sem að fær frí en Sergio Busquets fær einnig að hvíla sig í dag. Luis Suarez og Gerard Pique taka báðir út leikbann í dag og Sergi Roberto og Rafinha eru meiddir.
Ivan Rakitic ferðast heldur ekki með liðinu vegna veikinda.
Athugasemdir