Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 16. apríl
Sambandsdeildin
AZ - Shakhtar D - 16:45
Fiorentina - Crystal Palace - 19:00
AEK - Vallecano - 19:00
Strasbourg - Mainz - 19:00
Evrópudeildin
Celta - Freiburg - 16:45
Betis - Braga - 19:00
Nott. Forest - Porto - 19:00
Aston Villa - Bologna - 19:00
mán 13.apr 2026 23:15 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 10. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fram muni enda í tíunda og neðsta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Fram fellur niður í Lengjudeildina ef spáin rætist.

Fram er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar í sumar.
Fram er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ingi Rúnarsson var ráðinn þjálfari Fram í vetur.
Anton Ingi Rúnarsson var ráðinn þjálfari Fram í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brookelynn Entz hefur verið þrisvar í röð í liði ársins í Lengjudeildinni.
Brookelynn Entz hefur verið þrisvar í röð í liði ársins í Lengjudeildinni.
Mynd/K-State
Una Rós verður í stóru hlutverki hjá Fram í sumar.
Una Rós verður í stóru hlutverki hjá Fram í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ashley Brown Orkus ver markið.
Ashley Brown Orkus ver markið.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Murielle Tiernan fór í Stjörnuna.
Murielle Tiernan fór í Stjörnuna.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur María er orðin fyrirliði Fram.
Hildur María er orðin fyrirliði Fram.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Taylor Hamlett gekk nýverið í raðir Fram.
Taylor Hamlett gekk nýverið í raðir Fram.
Mynd/Fram
Isabelle Rose Gilmore kom frá FHL.
Isabelle Rose Gilmore kom frá FHL.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Alda Ólafsdóttir.
Sóknarmaðurinn Alda Ólafsdóttir.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir Fram í sumar?
Hvað gerir Fram í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Fram, 17 stig

Um liðið: Það er ekkert sérlega langt síðan Fram setti á laggirnar kvennalið sitt í núverandi mynd en uppgangurinn hefur verið hraður og öflugur. Liðið fór með sigur af hólmi í 2. deild kvenna sumarið 2022 og fór liðið svo upp úr Lengjudeildinni 2024. Í fyrra spilaði liðið í Bestu deildinni og átti gott sumar þar sem falldraugurinn gleypti liðið ekki. Fram náði að bjarga sér nokkuð þægilega og var áttunda sætið niðurstaðan. Það hafa orðið miklar breytingar í vetur og meðal annars þjálfarabreytingar en Óskar Smári Haraldsson, sem hafði komið liðinu úr 2. deild í Bestu deildina, hvarf á braut og tók við Stjörnunni. Það hefur verið nokkuð rætt og ritað um það að Fram sé að draga saman seglin með kvennaliðið sitt og það hefur vakið ákveðnar spurningar. Grunnurinn er til staðar eftir góðan árangur undanfarinna ára og nú þarf að byggja á honum.

Þjálfarinn: Anton Ingi Rúnarsson er mættur í Úlfarsárdalinn eftir að Óskar Smári hætti störfum og tók við Stjörnunni. Anton Ingi er 29 ára og hefur starfað við þjálfun hjá Grindavík frá 2019. Hann þjálfaði kvennaliðið í tvö ár og var yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Anton Ingi stýrði karlaliði Grindavíkur í síðustu tveimur leikjunum á síðasta tímabili en liðið náði að halda sér uppi í Lengjudeildinni. Núna stígur Anton út fyrir Grindavík og þjálfar í fyrsta sinn í Bestu deild kvenna. Hann er efnilegur þjálfari sem fær verðugt verkefni í hendurnar.

Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Breidd og gæðaleysi verður liðinu að falli
„Eftir storm í vatnsglasi þegar Óskar Smári gekk út úr dal draumanna vegna þess að það átti að fara draga saman seglin mætir nýr þjálfari til leiks með fimm erlenda leikmenn."

„Liðið hefur sýnt það á undirbúningstímabilinu að þær geta varist vel en sóknarleikurinn hefur ekki verið upp á marga fiska og mun mæða mikið á Unu Rós, Brookelynn og Öldu Ólafs að búa til og skora mörkin. Sara Svanhildur er sá leikmaður sem ég er spenntastur fyrir hjá Fram í sumar en hún hefur þennan X factor sem Fram vanta til að stækka möguleika sína á að halda sér í deildinni."

„Ef Fram neglir fyrir markið, nær upp stemningu og fólk mætir á völlinn að þá geta draumar ræst."


Lykilmenn: Brookelynn Entz og Una Rós Unnarsdóttir
Brookelynn Entz var fyrsti leikmaðurinn sem Fram sótti fyrir komandi keppnistímabil. Hún er öflugur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur spilað síðustu fjögur tímabil á Íslandi. Hún hefur verið í liði ársins í Lengjudeildinni þrjú ár í röð og hjálpaði Grindavík/Njarðvík að komast upp í fyrra. Núna þarf hún að sýna að hún geti blómstrað í deild þeirra bestu. Una Rós kom til Fram fyrir síðasta tímabil og var mjög öflug með liðinu, ein af bestu leikmönnum liðsins. Anton Ingi, nýr þjálfari Fram, þekkir hana líka vel eftir að hafa þjálfað hana í Grindavík. Una Rós þarf að stíga enn frekar upp í sumar.

Gaman að fylgjast með: Hildur María Jónasdóttir
Hildur María er á leið inn í sitt annað tímabil með Fram en hún tekur við enn meiri ábyrgð í sumar þar sem hún verður fyrirliði liðsins. Hildur spilar sem miðjumaður. Hún er uppalin hjá Breiðabliki en var hjá FH áður en hún gekk í raðir Fram. Faðir hennar, Jónas Grani Garðarsson, varð markakóngur í efstu deild með Fram árið 2007 en það væri ekki verra fyrir Fram ef Hildur myndi finna markaskóna í sumar.

Komnar:
Brookelynn Paige Entz frá Grindavík/Njarðvík
Krista Dís Kristinsdóttir frá Þór/KA
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið frá Breiðabliki (var á láni)
Isabelle Rose Gilmore frá FHL
Katrín S. Vilhjálmsdóttir frá Aftureldingu
Kristín Magdalena Barboza frá Breiðabliki (var á láni hjá Haukum)
Hanna Faith Victoríudóttir frá Aftureldingu
Lara Margrét Jónsdóttir frá Tindastóli
Harpa Helgadóttir frá FH á láni
Taylor Hamlett frá FHL

Farnar:
Lily Anna Farkas í Grindavík/Njarðvík
Murielle Tiernan í Stjörnuna
Telma Steindórsdóttir í Stjörnuna
Kamilla Pickett
Dominique Flasza
Elaina La Macchia
Olga Ingibjörg Einarsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Sara Dögg Ásþórsdóttir í Fylki
Katrín Ásta Eyþórsdóttir í KR (var á láni hjá Fylki)
Eyrún Vala Harðardóttir í Val



Fyrstu fimm leikir Fram:
25. apríl, Fram - ÍBV (Lambhagavöllurinn)
29. apríl, Breiðablik - Fram (Kópavogsvöllur)
5. maí, Fram - Þróttur R. (Lambhagavöllurinn)
11. maí, Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)
20. maí, Valur - Fram (N1 völlurinn Hlíðarenda)

Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
banner